Ég er búin að sjá það að það er ekki mjög sniðugt að vaka eftir boxi þegar það er vinna daginn eftir. Ég skreið upp í rúm klukkan 6 í morgun eftri að hafa horft á Roy James jr boxa John Ruiz í "spáð" (þó hann hafi nú bara unnið á stigum), en ú je mæ men :) það var reyndar ekkert svo erfitt að vakna klukkan hálf 8 til að mæta í vinnu samt. Siggi "litla hetja" bróðir minn mætti aftur á Barónsstiginn til að horfa á box likt og siðustu helgi en núna ætlaði hann sko að vaka, en vitir menn hann var sofnaður áður en beina útsendingin hófst og þá búin að kúra í sofanum í pinu stund. En ég gleymdi alveg að segja "ykkur" hvert ég er að fara ég. Ég áhvað að heiðra Svia með nærveru minni í eina 8 daga, og það bara eftir ..................... omg bara 14 daga, jessss mins er strax farin að hlakka til. Lalli og strákarnir eru að fara út eftir 4 daga, alveg hrikalegt stundum hvað timinn liður hratt á gerfi hnattar öld eins og segir í laginu.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim