Daginn. ohh hvað það er næs að eiga frí og bara huxunin um að eiga 4 daga frí í vikunni bara beytir öllu sambandi við vinnuna. En það var ss ekki mikið gert í gær vann til 15 og var ykt kát því ég var buin að ná að plata mömmu að koma með mér út að labba en þegar ég mætti til hennar, en NNNEEEEIIII hún nennti því ekki, alveg ekta mamma. Já til að gera ykkur alveg orðlaus var hún ennþá í náttbuxunum og þó farin að hengja út þvott. Erla frænka kom nú íbærinn lika í gær þannig mamma var nú alveg afsökuð að nenna ekki út að labba. Ég varð mikið undrandi í gær þegar ég sá í dagskrá RÚV að það byrjaði mynd kl 00:48, vell dönn Rúv. Nú er bara næsta mál að hafa einhverjar áhorfanlega myndir :)

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim