góðir hálsar, ég biðst afsökunnar að ég sé enn og aftur buin að svikja loforðið um að vera dulgeg að skrifa. Um daginn þegar ég sagðist ætla að skrifa þegar ég væri komin í vinnuna, þá varð ég svo pirruð eitthvað þegar ég kom i vinnuna að ég hefði getað drepið heila hersveit. Ég loksins er búin að komast að hjá Bergi kiro, hann sagði að það ætti ekki að vera mikið mál að laga þetta. 5. hryggjaliður er og framalega og bolga við mjaðmaliðinn hægramegin og af þvi orsakast að taugin klemmist niður í fotinn og mins er með stanslausann dofa í fætinum. En það er stax léttir að vita hvað er að og það er hægt að gera eitthvað í þessu ekki eins og heimilsilæknirinn og afleysingarlæknirinn hja honum sögðu þetta lagast það tekur bara tima. HAAALLLLÓÓÓ, þetta byrjaði í september og hvað í ósköpumum þarf langan tima til að þetta batni???? Ég hef bara ekki þolinmæði í að biða eftir að þetta lagist.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim