Kanika datt ofaní kolakassa

Engin abyrgd a stafsettningu

sunnudagur, júní 22, 2003

BRÚÐKAUPIÐ seinni hluti


Jæja þá er maður kominn aftur, tölvan hrundi. En allavega þar sem pabbi er nú ekki með hæst mönnum þá getur karl anginn ekki verið í kjólfötum eins og hinir svo það verður að finna eitthvað annað á hann einhverjar tillögur? Var að spá í bara smokning á hann. En nog um föt, er búin að kaupa meira og minna allt sem þarf í skreytingar og sollis. Núna er eiginlega bara að fara að ná þá sem búið er að panta ss. glösin og hnifinn í merkingu niður Merkt, hingapúða niður í Völustein og sollis. Fæ nú ekki þakkargjafirnar fyrr en í byrjun júli sem er reyndar... OMG BARA Í NÆSTU VIKU, kræst hvað stittist í þetta. Það er einn hlutur sem er reyndar að veltast fyrir okkur sem þarf að fara að áhveða það er blessaður bilinn, mig langar að fa Alfa Romeoinn sem Ísi bróðir Lalla á en hann vill endilega lána okkur Catilack sem að mér fynnst bara hundljótur. En það reddast eins og hvað annað. Núna þegar svona nær liður þá fer að koma upp að eitthvað klikki. Eins og t.d. tónlistar gellan sem við vorum búin að fá forfallaðist og vist ekket við því að gera nema kannski fara og lemja leikstjor Grees í spað og vona að hann hætti við að hafa leiksyningar á laugadögum, en þar sem ég tel mig nú ekki ofbelisfulla manneskju þá reyni ég bara að finna annan tónlistarmann. Ég svo sem veit ekki hvað ég á að segja ykkur meira í bili en endilega spurjið ef ykkur eitthvað liggur á hjarta dúllurnar minar :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim