Kanika datt ofaní kolakassa

Engin abyrgd a stafsettningu

mánudagur, mars 01, 2004

Hefur einhver spáð í því hvað mömmur er rosalega mikilvægar??? Ég veit ekki hvar ég stæði ef mömmu minnar nyti ekki við, og þá meina ég nú ekki bara til að fara í mat til þegar maður nennir ekki að elda heldur bara til að halda sönsum. Þessi elska kemur alltaf eins og kölluð ef eitthvað bjátar á og hefur alltaf svör við öllu. Elsku mamma (nú veit ég ekkert hvort hún kiki nokkur timann hérna inn) en takk fyrir alla hjálpina og stuðninginn í gegnum árin og séstaklega á þessum ekki alveg auðveldustu tímum sem af er þessu ári. Stórt KNÚS til þín, mamma.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim