HEYR HEYR
Ég var að lesa mbl sem ekki var frásögu fræandi en ég sá þessa fréttir og mikið hlakkar mig til þegar og ef þessu verður komið í gegn.
Innlent Morgunblaðið 7.10.2004 05:30
Löng nöfn skráð í þjóðskrá
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur endurflutt þingsályktunartillögu sína, frá síðasta þingi, um að ráðin skuli bót á því að löng nöfn eru ekki skráð í þjóðskrá. Beinir hann því til ráðherra Hagstofu Íslands að finna lausn á þessu.
"Nú er það svo að hvert skráð nafn má einungis taka 31 stafbil. Fjölmörg íslensk nöfn sem teljast ekki óvenjuleg á nokkurn hátt, til dæmis nafnið Sigríður Kristbjörg Sigurðardóttir, eru of löng til að uppfylla þessi ströngu skilyrði. Ef vilji er fyrir hendi hlýtur að vera unnt að finna tæknilega lausn á þessum skráningarvanda svo að fólk sem heitir löngum nöfnum, jafnvel þremur fornöfnum, sem er ekki óalgengt, fái nöfn sín skráð rétt í þjóðskrá."
Ég er nú ekkert búin að eiga í neitt litlu stappi við þá utafn nafninu minu og verð mjög ánægt þegar ég get farið að heita það sem ég var skir.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim