Apaköttur/ Refabelja/ Fiskisvín
Við fórum upp í bústað um páskana sem var fínt. En upp í bústað hefur maður stundum of mikinn tíma til að hugsa um ekki neitt. Eitt sem ég velti miki fyrir mér upp í bústað var hvaðan er orðið Apaköttur komið? Hvað eiga api og köttur sameiginlegt? Afhverju er ekki sagt "þú ert nú meiri Refabeljan" eða í staðinn fyrir þú ert nú meiri apakötturinn. Ég bar þetta undir fjölskylduna mína sem var með í bústaðnum og þau sögðu það hljómar ekkert eins vel, en spáið í því hjómar það eitthvað vel? Erum við ekki bara orðin svo vön að heyra talað um apakött að okkur fynnst ekkert að því? Nú er ég allavega búin að vera t.d. að segja orðið Refabelja í höfðinu á mér í nokkra daga og það hjómar bara ekkert verr en apaköttur. Prófið það bara sjálf ef þið trúðið mér ekki.....
Þetta er ekki apíl gabb
Þetta er ekki apíl gabb

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim