Kanika datt ofaní kolakassa

Engin abyrgd a stafsettningu

mánudagur, júlí 21, 2003

Þá er maður kominn heim úr þessar litlu en frábæru brúkaupsferð. Hún var nú bara stutt eða í Hrunamannahreppinn í bústaðinn sem vinnan hans Lalla á. En ja míns er orðin Frú og heppnaðist allt eins og best veður á kosið. Fengum salinn á föstudeginum og fór föstudagurinn bara í að stussast að kauða fleiri vasa og sollis því min fattaði það bara á aðfara nótt föstudagsins að við ætluðum að hafa 2 vasa á hverju borði en ekki bara einn eins og ég var búin að kaupa. Það var náði í fötin og fyrir mig og kallana á föstdeginum lika, svo var æfing fyrir athöfnina klukkan 18 og eftir það var farið á fullt að klára að skreyta salinn og gera allt tilbúið. Það var búið um kl 10 á þá fórum við heim til mömmu pöntuðum okkur pizzu og chilluðum þangað til við allt í einu föttuðum að við áttum eftir að gera nyja borðaskipan og prenta út þannig það var bara express hoppað framm úr rúmin og gengið frá þvi. Á laugadeginum var dagurinn tekinn snemma, var komin heim til mömmu um 9 og farið í sturtu. Þóra Valdís (hárgreiðslustelpan) kom klukkan 10 og Sigrún (förðurnar kellan) kom klukkan 11. Þegar allt það var búið var að drífa sig í kjólinn og koma sér í myndatök. Við fórum til Siggu Backman í myndatöku upp í Mosó. Jón Árni bróður sonur Lalla var bilstjóri fyrir okkur og stoð sig með stakri prýði. Fall er fara heill eins og Sigga sagði þegar hún þurfti að taka myndirnar allar aftur þegar hún var hálfnuð því það klikkaði filmurnar hjá henni. Útaf okkur einskaði hjá Siggi vorum við frekar sein og Lalli kom ekki í kirkjuna fyrr en um 15:35 en það reddaðist var engin kominn. Athöfnin gekk rosalega vel fyrir sig alveg eins og við hefðum ekki gert neitt annað um æfina en að gifta okkur. Sr.Sigurður Grétar sóknarprestur á Hvammstanga gifti okkur, hann er æskuvinur Lalla úr Fossvoginum. omg hvað klukkan er orðin margt skrifa meira á morgun gn

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim