Sjáið hvað ég fann ógilega sætan rassálf á netinu í dag, fynnst ykkur hann ekki sætur lika?
Ég hafði nefnilega EKKERT að gera í dag nema hanga á netinu svaf framm að hádegi og gerði nákvæmlega ekkert eftir það. Í gær fengum við KLÓ okkur göngu túr um miðbæ Hafnarfjarðar og skemmtum okkur konunglega, heiðruðum starfskonur bókasafnsins með nærveru okkar í um klukku tima eða svo og röltum svo áfram. Náðum í Lalla í vinnuna og fórum niður við Lækjarskóla að leika meðan við biðum eftir ömmu Lóu. Mamma eldaði svo kjötbollur handa öllu genginu. Hehehe þetta er farið að lyta út eins og dagbók sem maður skrifaði þegar maður var 10 ára, nema ég gat aldrei haldið dagbok ég gleymdi alltaf að skrifa eins og þeir hafa tekið eftir sem fylgjast með siðunni minni ; )

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim