Kanika datt ofaní kolakassa

Engin abyrgd a stafsettningu

sunnudagur, maí 23, 2004

Fótbolti

Ég er ekki ennþá farin að skilja þessa miklu ástríðu eiginmans mins á fótbolta og mun sennilega aldrei skilja. Að elta einhverja tuðru um völl sem næstum jafn stór og öll bílastæði Smáralindar til saman og um leið og þessir kallar ná tuðrunni þá sparka þeir henni frá sér jafn óðum. Eitt er þó öllu framan sem ég skil ekki í þessari heims elskuðu íþrótt og það er RANGSTÆÐA. Þessir menn hlaupa eins og vitleysingar um allan völl sparka hvort annan niður eins og það sé point leiksins og oftar en ekki komast þeir upp með það, en ef þeir voga sér inn fyrir einhvera ýmindaða línu sem eigin raunverulega veit hvar er verður allt vitlaust flöggum veifað og allt í hamagangi........... Hvernig er hægt að dæma á sollis? Ég er lika farin að hallast mjög á að fótbolti hafi verið fundinn upp af sameiginlegri nefnd bjór-framleiðenda í gamladaga til að tryggja örugga sölu á þessum ógeðslega drykk. Að reglan hafi verið sú í upphafi að þú þurftir að vera búin að drekka allavega einn til tvo helst fleiri bjóra til að fá að spila. Þetta þótti auðvita mjög fynndið og fleiri vildu vera með og fóru að drekka bjórinn líka til að fá að vera með en með tímanum hefur það þróast í þetta far sem það er í dag. Áhorfendur drekka en leikmennirnir fá milljonir fyrir hvern leik frá bjórframleiðendunum fyrir að tryggja örugga sölu á bjórnu.


Fyrst ég er á annað borð farin að tala um íþrottir þá ef maður huxar um það til óendanlega mikið af furðulegum íþróttum, T.D. Krulla (Curly). Sú "íþrótt" var liklega fundin upp af heimavinnandi húsmæðrum sem voru ornar leiðar á að skúra einar, svo þær áhvaðu að hittast og súra saman.
Skák fynnst mér ekki frekar en Jóni Gnarr ekki vera íþrótt. Þó ég sé nú ekki jafn gróf í lýsingumeins og Jón að segja það hobby fyrir nörda, þá er bara ekkert íþróttalegt við það að sitja og huxa all day long. Box er nú eitt af því sem mér fynnst ekki vera íþrótt, að berja andstæðinginn til óbota..... Hvað varð um íþrótta andann sem var verið að pretika um hérna í gamla dag þegar maður var að sprikla í markinu hjá Haukunum. Já hlæðu bara, ég veit ég er ekki íþóttamannslega vaxin og ekki í þrótta týpa en allir gera mistök nokkrum sinnum á ævinni. Uff ég verð að hætta áður en ég tapa mér alveg hérna er alveg komin í ham. Þannig ég læt spalli mínu um íþróttir lokið hér með :)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim