Aðeins ein ÉG
Þvi miður fyrir læknastéttina en sem betur fer fyrir fjölskylduna mína er að eins til ein ÉG. Þeir sem hafa lesið bloggið hafa lesið um það að ég skar á mér fingurinn fyrir um 3 vikum síðan. Í fyrrakvöld bætti ég um betur og braut á mér tá. :( Ég var ekki geðvond eða í þunglyndis kasti bara svo það sé á hreinu :) Ég var bara að koma út af klósettinu heima og á leið upp í rúm og rak fótinn svona hressilega í stól sem varð á vegi mínum. Táslan böglaðist öll, það var vont en ég reyndi að halda í mér ópunum, en þegar smellurinn heyrðist og verkurinn jókst skyndilega get ég ekki haldið í mér lengur og öskrin í mér hafa örugglega vakið alla í hverfinu. Þó svo ég hafi oft tábrotnað áður þá hef ég aldrei orðið eins marinn og ég er núna á tásunni, hún er öll svar blá og krumpin og ég geng um jafn höllt og 3 fættur hundur.
Sem betur fer er bara ein Ég :)

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim