Kanika datt ofaní kolakassa

Engin abyrgd a stafsettningu

þriðjudagur, apríl 12, 2005

Er ekki kominn tími....

Er ekki kominn tími til að fara segja eitthvað hérna. Við fjölskyldan fórum í keilu um þar síðustu helgi, sem var mjög fínt. Engum orðum fer af sigurverara en það var allavega ekki ég. Við skötuhjú fórum svo í bíó í síðustu viku sem gerist ekki nema nokkrum sinnum á ári og hvað þá að við förum bara 2 í bíó það eru örugglega nokkur ár síðan það gerðist. Við fórum að sjá The Phentom of the Opera, hún er mögnuð. Aldrei á ævinni hef ég áður farið niður í kjalla í Háskólabíó áður til að sjá mynd. Salurinn var frekar litill, sætin voru geðveikt hörð og óþægileg. "Kókið" var ekki drekkandi vegna óbragðs af gosvélinni sem greinilega hafði ekki verið þrifin í ár og aldir, ópalið hefði verið hægt að nota til að drepa mann með það var svo hart og fleira í þeim dúr. Þetta var samt þrátt fyrir allt fínasta kvöld þar sem ég sat hreinlega stjörf yfir myndinni og þarla þorði að blikka augunum af ótta við að missa af einhverju. Síðasa föstudag buðu svo tengdaforeldrar mínir okkur í mat og klikkar maturinn hjá tengdapabba ALDTEI. Laugadagurinn var frátekinn í brúðkaup Karls og Camilli. Ég hef nú aldrei haft neitt dálæti á hvorki Karli né hvað þá Camilli (enda lituð af skoðunum Díönu sjúkrar móður minnar :)) en mér fannst þau komast stór slysa laust frá þessu. Hún var óvenju smart í taujinu þó ég undraðist mjög að hún skildi vera í hvítu við athöfnina sjálfa. Persónulega finnt mér Camilla sýna hversu mikil manneskja hún er með að taka ekki upp titilinn Prinsessan af Wals heldur Hertogaynjan af Cornwall, og sýna þar með minningu Díönu mikla virðingu. Sunnudaginn var byrjaður mjög seint enda vöknuðum við ekki fyrr en klukkan var alveg að slá í 15. Við kiktum svo til pabba og þrifum fyrir hann sameignina og snæddum fínann kvöldverð að hætti hússins og kjöftuðum framm á kvöld. Af pabba er það að frétta að hann er búinn að fá tíma seinna í mánuðnum í mjaðmaaðgerð og krossleggjum við fingur og vonum að allt gangi sem allra best. Mamma er búinn að vera í öllum mögulegum og ómögulegum rannsóknum undafarið og held ég svei mér þá það hafi litið annað komið í ljós en við þegar vissum að hún væri one of a kind. Læt þetta duga í bili, Arios

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim