Kanika datt ofaní kolakassa

Engin abyrgd a stafsettningu

föstudagur, ágúst 05, 2005

Fúff ég veit ekki hvar ég á að byrja, það er svo langt síðan ég sagði eitthvað síðast. En byrjum á því sem kom fyrst. Eins og flestir eflaust orðið vita í dag eigum við hjónin von á barni i Desember. Meðgangan hefur gengið svona nokkuð stór áfalla laust fyrir sig. Þar sem ég er með sykursyki fyrir er ég undir sérstöku eftirliti bæði niður á Miðstöð Mæðraverndar og á Göngudeild sykursjúkra. Ég þarf að mæla blóð sykurinn 4-5 sinnum á dag. Fastandi á morgnana og svo hálftíma eftir hverja máltíð. Allt gos og nammi er auðvita úr sögunni og svei mér þá hefur það gengið betur en ég virkilega þorði að vona. Ég sakna gossins ekki rassgat en langar nú stundum í smá nammi en eins og Helga læknir niður á gögudeild segir: þetta er takmarkaður tími og hvað gerir maður ekki fyrir börnin sín. Þó ég hafi hætt að borða nammi og drekka gos og allt það þá samt var ég alltaf á mörkunum að vera yfir leyfilegum sykurmörkum svo ég var sett á Insulín og þarf að sprauta mig með 4 einingum á morgnana. Blóð þrystingurinn er mjög fínn og allt annað í nokkuð góðum málum. Þó svo ég sé gengin 22 vikur þá er ég 10 kílóum léttari í dag en ég var í mars á þessu ári :) helviti stolt af því. Krílið er nú samt farið að taka svolitið pláss buxur og annað aðeins farið að þrengjast. Ég reyndar er með bölvaðan verk í hægri fætinum, ég veit ekki hvernig á að lýsa honum nema hann er ekki ósvipaður og náladofi nema bara helmingi verri. Ef það er bara svo mikið sem komið við fótinn eða ég rétt strík mér utan í versnar verkurinn svakalega. Ég er búin að prófa allt til að reyna láta þetta fara en ekkert virkar. Mamma vill meina að barnið liggi þannig að það þrýsti á einhverja taug sem liggur niður í fótinn og af því orsakast þessi mikli og undarlegi verkur. Ég á eftir að bera þetta undir ljósmóðurina sem sér um okkur niður á mæðravernd og lækninn næsta þriðjudag þegar ég fer í skoðun og segi ykkur betur frá því þá hvað þau halda. Við fórum í 20 vikna sónarinn deginum áður en við fórum út, mig sem var búið að hlakka svo svakalega til að fara í sónarinn varð fyrir mjög miklum vonbryggðum. Ljósan sem gerði sónarinn hafði greinilega ekki farið réttu megin frammúr þennan daginn og var mjög fúl greyjið og hreinlega leiðinleg. Við kauptum þessar 2 myndir sem hún hafði tekið aukalega og þó það sé ljótt að segja að þær eru ljótustu sónar myndir sem ég hef séð :( Morguninn sem við fórum út forum við svo í mæðraskoðun og töluðum við lækni. Hann sagði okkur hvernig planið væri svona seinn part meðgöngunar. Við verðum sendi í hjartaómskoðun núna 16 águst, svo er það sónar til að athuga með stærðina á barninu í 30 viku og aftur á 36 eða 37 viku. Frá 30 eða 35 viku ( man ekki alveg hvort haldur var ) á ég að fara niður á Lansa á alla þriðju- og föstudaga í mónator. Þetta er allt útaf sykursykinni sem þessar ráðstafanir eru gerðar. Börn mæðra með sykursyki er hættara til að hafa hjartakvilla og einning er meiri hætta að það sé eitthvað að hryggnum á þeim. Þess vegna eru við send í hjartaómið en hriggurinn sást mjög vel í 20 vikna sónarnum og hann leit mjög vel út. Læknirinn sagði að ég yrði ekki látinn ganga neitt framm yfir tímann, sem reyndar gladdi mig mjög að heyra en hann sagði það væri yfirleitt ekki gert ef konur eru með sykrsyki. Ég veit nú ekki hvað ég get sagt ykkur meira, en ef þið viljið spurja þá endilega skrifið comment á það og ég svara eftir bestu getu.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim