Kanika datt ofaní kolakassa

Engin abyrgd a stafsettningu

fimmtudagur, júní 02, 2005

Ég verð að monta mig meira.

Ég gleymdi nú að tilkynna það hérna í síðasta mont pislti mínum að fyrir utan að litli bróðir sé að brillera í körfunni á ég líka frændsystkyn sem bæði eru í A-landsliði Íslands. Þessar elskur (Helga og Egill Jónasbörn) eru þessa stundina í Andorra að sýna snilldar tilþrif eins og lesa má um á heimasíðu KKÍ

Ég má til með að copya smá brot af grein sem er á KKÍ-síðunni um frammistöðu Íslenskustrákanna eftir 30 stiga sigur á Andorra:

[ Þá er ógetið nýliðanna sem léku sinn fyrsta landsleik í kvöld. Darryl Lewis átti góðan leik, skoraði 11 stig, hirti 8 fráköst og gaf 4 stoðsendingar, Sævar Harladsson lék 6 síðustu mínútur leiksins og komst vel frá þeim, skoraði 4 stig. Egill Jónasson skoraði 4 stig, tók 5 fráköst og varði 2 skot. Egill lék í 17 mínútur en fór út af með 5 villur. Áhorfendur, sem fjölmenntu í höllina hér í Andorra í kvöld, klöppuðu Agli lof í lófa þegar hann tróð viðstöðulaust sendingu frá einum samherja sinna. Tilþrif sem ekki sjást á hverjum degi. Þessi hávaxni leikmaður, sem er 217 sm á hæð, hélt sannarlega uppá sinn 21 afmælisdag á eftirminnilegan hátt.]


Ég því miður á ekki mynd af henni Helgu frænku minni en vona hún fyrirgefi mér það.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim