Evróvisjón

Þetta var nú meiri skandallinn... ég segi nú ekki annað.
Í fyrstalagi var þessi búningur sem verslingurinn hún Selma var í fyrir neðan allar hellur. Það leit úr eins og hann hefði verið saumaður á mig og svo skellt á hana hann var svo stór, pokaði hér og þar og svei mér þá það leit út á tímabili eins og hún væri með tippi. Jájá ég veit á hvað var ég að horfa mér fannst þetta bara svo hallærislegt að ég náði varla andanum.
Í öðrulægi á hverju voru dansararnir? Reyndar má ekki kenna dönsurunum um hvergni þessi blessaði dans var saminn en á hverju voru þá systurnar þegar þær sömdu hann?
Í fjörugasta parti lagsins lágu dansararnir golfinu eins og á ýmindaðri sundæfingu.
Reyndar skal ég alveg gefa plús fyrir það að söngur Selmu var að mínu mati bara nokkuð góður þó allt annað hefði verið hálf klént.
Við fjölskyldan reyndum allt sem við gátum til að réttlæta þetta en nei það var ekkert sem við gátum dotti í hug sem mögulega gæti réttlætt þetta. Guðni kom með þá uppástungu að þessi för okkar í Júró hefði verið styrkt af Besta og því hefðu þær þurft að sýna framm á að vörurnar frá Besta myndu nú virka með því að leggjast þarna niður og þrífa gólfið.
Af öðrum lögum vannst mér Norðmenn gjörsamlega eiga kvöldið....... þetta lag var snilld, hrein snilld.
Stúlkan frá Hvíta-Rússlandi var í svakalega flottum kjól, þó svo dansararnig hefðu nú ekkert verið þeir al flottustu.
Rúmenía var með svoldið öðruvísi sviðsframkomu en mér fannst það nokkuð svalt stípurokkar og læti :) magnað.
Danir fannst mér ekki alveg vera að gera sig með þessa Dressman útfærslu sína.
Tvær sílikon drottninga voru meðal þeirra sem komust áfram, spurning eftir hverju fólki dæmir þá sem komast áfram ;)
Hvað fynnst ykkur góðu lesendur?

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim