Ritstífla
Eiga fleiri við þetta leiðinlega vandarmál að stríða?
Þegar ég heyri fréttir og sollis þá bara: AHA þarna hef ég eitthvað til að blogga um en svo loksins þegar ég kemst í tölvu og hef tíma til að blogga þá situr allt fast og ég veit ekkert hvað ég á að segja.
Eitt af því sem ég ætlaði sko að muna að blogga um í Apríl var fjölgunin í konungsfjölskyldum nágranna þjóða okkar Danmerkur og Noregs.

25 apríl barst tilkynning þess efnis að Danir ættu von á nýjum erfingja krúnunnar í lok Október.
Seinna sama dag kom svo tilkynning um að Hákon krónprins og Mette-Marit ættu von á sínu öðru barni, en ekki fyrr en í Desember. Ok reikið nú með mér maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember og desember. Sem gera ja hvað 7 til 8 mánuði eftir því hvenar í desember barnið á að fæðast.
Er það ekki frekar snemmt að opinbera það svona fyrir allan heiminn? Hvað ef eitthvað kemur fyrir?
Það sem ég held að málið sé er að þegar tilkynningin kom frá Dönsku konungsfjölskyldunni um að þar væri von á erfingja vakti það mikla athygli og allir samglöddust þeim innilega . Norska kongafamelían gat ekki unað þeirri Dönsku allri athyglinni og varð að koma með sína frétt líka sama dag alveg sama hvað Mette-Marit var komin stutt á leið.
Mér kemur þetta svona fyrir sjónum. Hvað heldið þið?

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim