Fæst gefins
Guð einn veit hvað ég orðin ógeðslega þreytt á þessum endalausu veikindum, læknirinn hringdi í morgun útaf niðustöðunum úr blóðprufunni sem ég fór í á föstudeginum fyrir versló og þá kom í ljós að ég er með byrjun á járnskorti og einhver vanstarfsemi í skjaldkyrtlinum. Öll vitamín voru samt í lægi (sem betur fer) og lang tima sykurinn var mjög góður svo það var ekki alslæmt. Fer í blóðprufu svo aftur eftir 2 mánuði og þá sest hvort það dugi að taka inn járntöflur eða hvort það þurfi eitthvað meira. En þið munið ef ykkur skildi allt í einu langa í sjúkdóm þá bara látið vita og ég skal gefa ykkur eins marga og þið viljið :)

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim