Kanika datt ofaní kolakassa

Engin abyrgd a stafsettningu

laugardagur, október 23, 2004



Karlaklúbburinn hittist í gær á hinum árlega makadegi. Farið var út að borða á Si Senior og klikkar maturinn þar aldrei, það var Nachos í forrétt og nauta og kjúklinga Fajitas í aðalrétt. Eftir mat og spjall var svo farið í keilu og klikkar aldrei keppnis andinn í hópnum. Helgi Viðars og Jón Árni voru skipuleggjendur af þessum degi í ár og voru þeir fyrirliðiar í sitthvoru keiluliðinu. Í Helga liði voru auk Helga, Gunnar tvíburi og Kristín og svo Gunnar Biering og Hulda. Í Jóns Árna liði voru auk hans Jóhann tvíburi og Auður og svo Lalli og ég. Helga lið vann með aðeins 2 stigum og eiga þau Gunnari Biering það allta að þakka því hann fékk auka skot í siðustu umferðinni. En til hamingju með sigurinn krakkar ;).

Annars er það nú upp á teningnum að ég lofaði mér í auka vinnu í dag frá kl 16 til 21, svo ég þarf vist að vera í vinnunni í 13 tíma í dag JÍBBÝ

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim