Kanika datt ofaní kolakassa

Engin abyrgd a stafsettningu

sunnudagur, ágúst 28, 2005

Veik einu sinni enn......

Nú er mér alveg nóg lokið, búin að vera veik einu sinni enn en öll að koma til. Ég sagði ykkur að við hjónakorning gætum ekki verið vandræðalaus í lengri tíma. Ég fór að fá mikinn verk i innsta jaxlinn hægramegin (hvað er málið með hægri hliðin á mér eiginlega, fyrst fóturinn svo tennurnar)fór til tannsa og þessi elska sagði mér að það þyrfti að rótafilla. Mín var auðvita ekki mjög kát en það verður víst bara hafa það. En viti menn ég gat nottulega ekki látið þar við sitja heldur fékk sýkingu í allt heila dótaríið með hita og öllu tilheyrandi. Fimmtudag leit ég út eins og Lalli hefði kýlt mig ég var svo bólgin en á föstudaginn var eins og ég væri með einhver taugasjúkdóm í andlitinu. En tannski setti mig á sýklalyf sem eru nú farin að vika og á svo að mæta til hans á miðvikudaginn í annað skipti af þrem til að klára þetta tannvesen. En er ekki komið nóg hvað á eiginlega að leggja á okkur næst? :)

Takk fyrir huggunina stelpur.
Ég gleymdi að svara Gerði Sif um hvenar ég væri sett. Ég er sett 8. Desember en vona það komi 9. ;)

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim