Það er nú svoldið síðan síðast póstur kom svo ég áhvað að henda inn einum.
Lalli er loksins komin heim af spitalanum eftir 2 og 1/2 vikna legu, en því miður finnst mér hann ekkert súper góður en vona þetta endist. Af mér(okkur krílinu) er ekki alveg nógu gott að frétta. Jú af krílinu er allt ljómandi að frétta það stækkar og stækkar og er farið að hrekkja mann með spörkum hér og þar þegar maður á síst von á. Hjá mér er ekki nógu góðar fréttir, sykurinn er ekki nógu góður og þarf þar af leiðandi að auka insúlínið, veit ekki hvað það verður aukið mikið en á að koma aftur á fimmtudaginn til þeirra. Andlega er þetta allt að fara með mig og hef ég tekið nokkur grát köstin hreinlega útaf ekki neinu og kviða köstin yfir að þurfa að fara í vinnuna eru næg til að hreinsa út heilan ættbálk. Ég talaði við ljósuna í morgun og sagði henni allt það létta, hún sagði mér að hafa ekki áhyggjur af vinnunni og að þetta myndi stundum koma fyrir þegar konur væru óléttar. Auðvita hefur maður áhyggjur af vinnunni og þegar maður er "bara" kominn 29 vikur og hafði hugsað sér að vinna allavega mánuð í viðbót þá er þetta svoldið skrítið. En svona er þetta bara og lítið víst við því að gera svo sem.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim