Þetta styttist
Úff nú er bara rétt rúm vika í settan dag :) og allt að smella saman heima fyrir. Búið að mála barnaherbergið og setja saman kommóðurnar og vögguna, eina sem eftir er að strauja vöggu settið og setja það á. Seinni vaxta sónarinn var síðasta mánudag og var allt fínt að frétta, krílið orðið 14 merkur og ekki nema 12% yfir þessari meðal kúrfu sem enginn tekur hvort sem er mark á. Ljósan og læknirinn voru mjög ánægð að það var "bara" 12% yfir, því oft væru sykursykis börn allt að 35% of stór ef ekki væri passað sig nóg.
Við stór fjölskyldan (Ég,Lalli,Mamma,Siggi,Jóna,Hafsteinn,Una,Guðni og Kristey) fórum í bíó á laugadaginn að sjá Harry Potter & The Goblet Of Fire. Hún var mjög góð svoldið drungalegri en fyrri myndirnar en mjög góð engu að síður. Eftir það var farið út að borða á Friday's og var maturinn á línuna ekki alveg til að hrópa húrra yfir þó minn matur hafi verið fín.
Á sunnudaginn kíktum ég, mamma og Kristey Lea til Erlu frænku í afmælis kaffi og náðum í vögguna í leiðinni.
Ég kíkti upp í vinnu áðan að sjá nýja húsið. Þetta leit ágætlega út en full kalt að mínu mati. Kaffi stofan var MJÖG köld, viss um að kellu greyjin fá meltinga truflun ef ekki verður bætt úr þessum kaffi stofu málum á næstu dögum eða vikum.
Mamma er víst búin að vinna svo ég ætla að láta þetta duga í bili svo hún geti slökt á tölvunni og gengið frá hérna.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim