Þó fyrr hefði verið............
Ég biðst afsökunnar á að hafa svikið ykkur í síðustu viku. En núna sit ég heima hjá mömmu að brúka tölvuna meðan Siggi bróðir sefur.
Hjá okkur er allt mjög fínt að frétta, það styttist og styttist í að krílið fari að láta sjá sig. Það eru ekki nema 4 vikur í settan dag og ef þær verða jafn fljótar að líða og síðustu 8 mánuðir þá sé ég fyrir mér að unginn verði kominn á morgun. Ég er farin að fara í mónitor alla þriðju- og föstudaga. Það var fyrsta skipti síðasta föstudag og það gekk ekki eins vel og ég hafði vonað. Fyrst fannst enginn hjartsláttur og ljósan sem var að reyna koma þessum blessuðu böndum á mig var farin að verða virkilega stressuð. Mér stóð nú ekki alveg á sama þegar hún stóð upp og fór að hagræða tjöldunum í kringum stólinn eins og eitthvað mikið væri að en auðvita var ekkert að heldur var krílið bara láta hafa svolitið fyrir sér og á endanum gekk þetta. Við vorum í eftirliti niður á sykurdeild í gær klukkan 9, mæðraskoðun klukkan 10 og mónitor klukkan 11 og fengum góða dóma allstaðar. Lalli tók sér frí fyrir hádegi til að koma með í allt þetta lækna stúss og ég held hann hafi bara haf lúmskt gaman af því.
Við fórum í fyrri stærðar sónarinn 11.okt og þá var allt vel innan eðlilegra marka, seinni stærðar sónarinn verður svo núna um miðjan nóv.
Við hjónin áhváðum að fá ekki að vita kynið þar sem okkur fannst/finnst svo stutt í að krílið komi í heiminn. Tengdamóðir mín var ekki mjög ánægð með okkur þegar við sögðum henni að við hefðum ekki fengið að vita það því hún var ekki búin að gera annað en að spurja hvort við værum búin að fara í sónar til að fá að vita kynið :) Tengdapabbi bjargaði okkur og sagði eins og satt er að kynið skipit ENGU máli meðan allt er í lægi með barnið.
Við erum búin að vera taka til og breyta heima til að geta komið barnaherberginu í stand áður en stóri dagurinn kemur. Það er búið að ganga alveg áfalla laust fyrir sig og á hún móðir mín nú stórann þátt í því hvernig vel það hefur gengið.
Það er búið að fjárfesta í þessum svona nauðsynlegustu hlutum s.s. vagni, kommóðu og fl. En rúmið sem okkur leist best á kemur ekki fyrr en í desember svo Erla frænka var svo frábær að lána okkur vögguna sína svona til að byrja með.
Ég læt þetta duga í bili, nógu langan tíma tók að koma þessu saman :) en ég ætla að reyna vera duglegri að skrifa.
Love you all........

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim