Kanika datt ofaní kolakassa

Engin abyrgd a stafsettningu

laugardagur, ágúst 14, 2004

Eyjar
Ég ætlaði að vera búin að segja ykkur hvað ég/við gerði af mér í sumar. Ég afrekaði það að koma til Vestmannaeyja :) og var í heila viku takk fyrir. Leigðum íbúð hjá VR sem var 96 fm og allur sá lúxus sem er á venjulegum heimilum fyrir utan það var ekki þvottavél. Skoðuðum ALLT.. Ég fékk mikið menningarsjokk af því að sjá hinn marg umtalaða DAL, sem að mínu mati lítur frekar út eins og grunnurdiskur en dalur. Lalli og Jóna systir voru alveg brjáluð þegar ég tjáði þeim álit mitt á Dalnum en so what hann lítur örugglega ut fyrir að vera 300 sinnum stærri ef maður er drukkinn. Unu (systir) langaði svo að skoða sjúkrahúsið svo hún áhvað að búa sér til ástæðu og sprangið varð fyrir valinu. Hún klifraði lengst upp i fjall því lik hetja en svo þegar á reyndi var hún svo hrædd að hún klifraði niður aftur og stökk. Við vorum svo ljótar við hana að við hlóum okkur svo máttlausar að við gátum ekki hjálpað henni á lappir :S Þau fóru svo heim á þriðjudeginum Una, Jóna, Kristey Lea, pabbi og Guðni. Við sem eftir vorum, ég Lalli, mamma og Siggi bróðir, héldum party (eða svona næstum) til að fagna því að þau voru farinn. Við skoðuðum allt sem hægt var að skoða á þessar litlu en FRÁBÆRU eyju. Var virkilega að fila mig fínt þarna og gæti vel huxað mér að búa þarna :) Myndir koma seinna.

Dalvík
Fórum til Dalvíkur í rúma viku sem var bara nice fengum yndislegt veður. Fórum á Akureyrir auðvita sem svo sem hefur ekkert breyst stíðan ég var þar síðast 01. Fórum yfir á Ólafsfjörð og Sigló sem heldur svo sem ekki mikið breyst nema hvað það eru engar almennilegar veslanir þar. Blómabúðin var ömulegri en ég veit ekki hvað, það var meira að segja hvergi hægt að fá póstkort með mynd af bænum á. Á leiðinni til baka komum við við hjá Karen og Rabba sem tóku vel á móti okkur í litla sæta sumarhúsinu sínu :) Takk fyrir okkur Karen. Það sem vakti mjög athygli mína á Dalvík var það hvað allt lokaði snemma meira að segja sjoppurnar um helgar. Mér og mömmu langaði svo hrikalega í ís eitt kvöldið, og áhvaðum að labba í sjoppuna, ég bað um í ís í boxi með heitri súkkulaði sósu og mamma með heitri karmellusósu. Það sem við fengum var svoldið langt frá því sem um var beðið því við fengum í í boxi með súkkulaði og lúxus dýfum. Ég auðvita varð að spurja hverju þessu sætti og þá setti hún setti upp mikinn undrunar svip og sagði þetta eru heitar dýfur...... Dööö hvernig ætlar hún að fara setja kalda dýfu á ísinn. Vann á 118 á Akureyri eina kvöld vakt sem var bara virkilega nice gaman að prófa að breyta svona til fyrst það er hægt. Allt allt öðru visi aðbúnaður þar heldur en hérna fyrir sunnan en alls ekki lakari.

Brúðkaup
Annað þá áttum við hjónakorn árs brúðkaups afmæli í síðasta mánuði sem við héldum uppá með að fara út að borða á Argentínu, mæli eindregið með þeim staði...

Begga "litla" bróðurdóttir Lalla gifti sig um síðustu helgi. Alveg yndisleg athöfn og veislan frábær. Begga og Ingó enn og aftur til hamingju.
Svo að lokum er búið að bjóða okkur í annað brúðkaup Jón Árni og Sigga eru að fara gifta sig 25 sept. Þau eru síðasta parið í kalla klúbbnum sem á eftir að ganga í það heilaga.

Sumar fréttum er nú lokið að sinni :) vona þið hafið haft gaman af lestrinum

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim