Menningar"nótt"
Ég skil ekki alveg afhverju þetta er kallað menninar nótt þar sem formleg dagskrá stendur frá 11 til 23 en það er önnur saga. Við kiktum í bæinn um 14 og vorum ekki heim fyrr en kl 2 um nóttina. Það helsta sem stendur uppúr af því sem maður sá var hljómsveitin Hoffman úr Eyjum, auðvita Ego og flugeldasýingin var GEÐVEIK. Um 17 voru allir ornir frekar þreyttir í fótunum og var áhveðið að kíkja á Kaffi París og mæli ég ENGAN vegin með þeim stað. Við vorum 6 og pöntuðum 4 kakó, 1 appelsín, 2 vöfflur, eplapæ með ís, kleinu, pasta af barna matseðli og tómatsúpu sem var súpadagsins. Það sem við fengum var var 3 kakó alveg ágætis kakó, appelsín sem er alltaf eins, vofflur sem hægt var að rota manneskju með því þær voru svo harðar, eplapæ sem var greinilega hitað í örbylgju ofni því það var svo seigt að það var ekki einu sinni hægt að skera í sundur með gafflinum, pasta og enga tónmatsósu og tómat súpu með eggjum og enga skeið til að borða súpuna með. Afburða þjónusta ekki satt?? Sáum hljómsveitina Thorshamar frá Vestmanneyjum lika, gitarleikarinn Benni "tatto" er vinur Lalla. Þetta var alveg ágætasta hljómsveit en sögnvarinn ekki alvega að meika það :S En þessir söngvarar gerast nú varla meira sexy en söngvarinn í Hoffman ;) hehehe Lalla fannst það ekkert finndið þegar ég kvíslaði þessu að honum meðan þeir voru að spila.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim