Ég verð
Ég fékk þessa sögu í e-mail frá honum Svavari móðurbróður mínum og ég hreinlega varð að pósta hana vona að sú sem skrifi söguna sé sama.
Subject: Farið varlega í Hollywood-kúrinn
--------------------------------------------------------------------------------
Þetta er sga af vinkonu minni, Hehe..
Ég ákvað að prófa þennan umtalaða Hollywoodkúr sem allir eru að tala um.
Það var nefnilega árshátíð í fyrirtækinu mínu akkúrat eftir tvo daga og mig
langaði til að
vera flott í kjólinn. Ég átti einmitt akkúrat fyrir flöskunni og miða á
árshátíðina.
Eftir að hafa lesið leiðbeiningarnar þá tók ég við að drekka djúsinn. Hann
var rammur og vondur
á bragðið en ég lét það auðvitað ekki stoppa mig. Svo átti ég að þamba vatn
á milli þess sem
ég fengi mér djúsinn.
Eftir ck. klukkutíma varð ég að hlaupa á klóið því það var eins og flóð
hefði farið af stað í iðrum
mér. ÉG ætla ekki að lýsa því hér hvernig mér leið á klóinu og hvað margir
lítrar runnu úr rassinum
á mér en alla vega fór örugglega eitt kíló af mér þarna.
Ég hélt svo áfram að þamba vatn og fá mér gollara af djús öðru hvoru.
Um hádegið eftir nokkrar klósettferðirnar þá var ég hreinlega að deyja úr
hungri.
Drakk meira vatn og meiri djús - á klósettið - meira vatn og meiri djús - á
klósettið..osfr.
Um kvöldið var hætt að renna úr æðri endanum en ég pissaði þeim mun meira.
Fór drullusvöng i háttinn og svaf vægast sagt mjög illa, með heiftarlega
magaverki , trúlegast
af svengd.
Næsta dag byrjaði sama píningin aftur en nú var ég ekki eins svöng - en
óstjórnlega illt í maganum.
Allan daginn drakk ég djúsinn og vatnið og fór þess á milli á klósettið.
Um kvöldið var ég að fara á árshátíðina og ég hlakkaði mikið til að stíga á
vigtina.
LOKSINS drakk ég síðustu dropana úr flöskunni og kúrinn var búinn! JIBBÝ!
Ég klæddi mig úr öllu og hljóp inn á bað , steig á vigtina og trúði varla
mínum eigin augum!
4,5 kíló farin!
Bara sisvona.
En það var svo sem ekki eins og ég hefði ekkert
haft fyrir þessu, allar klósettferðirnar og svengdin og
magaverkirnir..uss.
Ég var líka hálfslöpp, kom mér varla í árshátíðarkjólinn og hafði enga orku
í að mála mig.
Tók leigubíl niður á hótel Sögu og rétt var komin inn um dyrnar þegar að
það leið yfir mig!
Næringarskortur sögðu læknarnir..
og ég missti af árshátíðinni!

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim