Kanika datt ofaní kolakassa

Engin abyrgd a stafsettningu

mánudagur, janúar 31, 2005

Í minningu um Doddann



Doddinn minn



Ég sakna hans, það eru komin 4 ár síðan ég lét hann fara og ég sakna hans ennþá. Hann var draumur hreint út sagt draumur. 2200 vél, sjálfskiptur, blár mattur, ekki sá fallegast í útliti en er það ekki innri "maðurinn" sem skiptir máli. Doddi var fyrsti bílinn sem kom inn í líf mitt og eins og í góðu sambandi vorum við óaðskiljanleg þangað til Doddi var að því kominn að fara yfir móðuna miklu kom Ingó frændi og bjargaði honum. Hann fékk make over og nýtt nafn Trítill sem aldrei átti við hann, hann var bara Doddi. Doddi þjónaði minni fjölskyldu vel lifði af 3 Akureyrar ferðir (þó svo ein ferðin hafi endað í vegakant rétt við Bifröst og tekinn í drag deginum á eftir til Hafnarfjarðar eftir leka í sjálfskipti pönnu) og margar spyrnunar á rúntinum.

HEHE þegar við( ég og Anna Lára) vorum í Iðnskólanum voru við hiklaust á flottustu bílunum. Anna á gömulm Skoda sólgulum aka Gula hættan og ég á Dodge Omni bláum möttum aka Doddinn

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

<< Heim