Skamm, skamm
Þegar mamma er farin að skamma mig fyrir að það sé ekkert gaman að skoða heimasíðuna mina er mál til komið að fara skrifa eitthvað.
Það hefur svo sem hellingur gerst síðan ég skrifaði síðast, t.d. átti maðurinn minn afmæli og fullt af fleiri ættingjum, systkynabarna hittingur, leikhúsferð með Kristey og Sigga, og svo auðvita nottulega bara vinna.
Byrjum á systkynabarna hittingum sem var 14 nóv. Mér fannst vera kominn tími á að við barnabörn ömmu Fríðu og afa Nonna færum að hittast svona útaf mér hafði borist sú frétt til eyrna að Jón og Gunna væru að yfirgefa land. Það var auðvita eins og það var pinu vesen að finna dag en for restin fannst góður dagur sem allir gátu mætt. Og það mættu allir nema Einar sem hafði farið aftur til Danmerkur fyrr þann dag og Egill sem var vel afsakaður. Við borðuðum saman og áttum frábæra kvöldstund.
Sem betur fer var kylt á þetta á þessum tima því vikunni á eftir varð það staðfest að Jón og Gunna færu til Englands og þá var mikið verk fyrir höndum á stuttum tíma.
27 nóv var svo leikhúsferðin. Við skötuhjú fengum Kristey Leu og Ásgeir Sigga lánuð og fórum að sjá Söguna um Augastein. Þetta var bara hreinlega hin besta skemmtun og höfðaði svei mér þá ekkert minna til Lalla en Kristeyjar. Þetta leikrit er gert eftir bókinn hans Felix Bergssonar og gerði hann auðvita leikritið lika sem og var hann eini leikarinn. Sagan um Augastein er saga um það hvernig gömlu Jólasveinarnir þessu hrekkjóttu og vondu kallar breyttust í þessa góðu Jólasveina sem við þekkjum í dag. Athyglisgáfa barna er mjög undraverður hlutur, Kristey sat stjörf allt leikritið í fanginu á mér og sagði ekki orð, eftir leikritið sagði hún svo þegar við vorum að labba út ég var pinu hrædd við Grýlu og jólaköttinn en ekki mikið frænka. Eftir leikritið var svo auðvita farið og fengið sér að borða og völdu krakkarnir Mc donalds, Lalla ekki til mikillar skemmtunnar. Þegar heim var svo komið sagði ég Kristey að segja nú mömmu sinni, Jónu og Ingu Láru frá leikritinu og þá byrjaðu hún allt í einu að kalla á Augastein og ég bara húuuu varst þú ekki örugglega ekki á sama leikriti og ég svo allt í einu þá bara heyrðu jú Stekkjastaur kallaði á Augastein og varð ég að kyngja því að litla dýrið var með betra minni og athygli en ég.
Heill hellingu af fólki í kringum mig á afmæli í nóvember og óska ég þeim ÖLLUM innilega til hamingju og vona að þau hafi átt góðann dag. Hefst nú upptalningin:
5 nóv Harpa og Hildur litlu tvíburarnir dættur Jóhanns og Auðar, 6 nóv Lalli má ekki gleyma honum, 8 nóv Jóhann og Gunnar stóru tvíburarnir, 10 nóv Lísa hans Sigga Grétars, 14 nóv Birgitta dóttir Erlu hans Ísleifs, 18 nóv Gummi Jóns stóri bróðir mömmu, 20 nóv Jónas "litli" Steinarsson, 22 nóv Tómas Ármanns og Tule, 25 nóv Kalli hans Svavars, Árni Kjalar frændi Lalla, Hafdis Líf Esterar og Valda, 27 nóv Erla stóra systur mömmu, 30 nóv Svavar annar stóri bróðir mömmu og svei mér þá held ég að það sé upp talið ef ég er einhverjum að gleyma þá biðst ég innilega afsökunnar.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim