Það getur verið svo yndislegt að leita á Google, eftir að ég komst upp á lag með að nota þessa síðu þá hef ég ekki gert annað en að dásama hana. En það sem ég fann í þetta sinn kætti mig mjög. Sjáið bara sjálf, þetta myndi örugglega kæta ykkur lika :)
Dýr
Flugan Fríða
Sandra Björk & Laufey
Flugan hún Fríða er sko mörgum kostum búin. Hún getur flogið og einnig gengið.Hún getur spáð fyrir um veður, því þegar óveður er í aðsigi fær hún kitlandi tilfinningu í fremsta broddinn á fálmunum. Fríða sér líka betur en allir aðrir því að hún hefur röntgen geysla í augunum sem eru þess valdandi að hún þarf að vera með sólgleraugu þegar hún er innan um aðrar lífverur. En það magnaðasta og voldugasta við hana er það að hún hefur gríðarlega lærvöðva því að hún er þjálfuð í því að bera matarforða heim í Coloniu, oft langar leiðir. Æðsti draumur Fríðu er að vera hin eiginlega Fríða Bond, því hana langar mest af öllu að verða njósnafluga. Því eyðir hún mestum af sínum frítíma í það að njósna um sveitunga sína og komast að þeirra dýpstu leyndarmálum. Fríða er algjör snyrtipinni og eins og sjá má er hún alger gella. En hún á sínar myrku hliðar sem koma í ljós þegar eitthvað fer ekki eins og hún vill. Sem betur fer hefur ekkert reitt hana til reiði en þið skuluð passa ykkur þegar það gerist.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim