Jólatré
Við fórum með Sigga bróðir í jólatrésferð á vegum símans þann 12 desember síðastliðinn. Við fundum eftir pinu leit rosalega fínt jólatré og tókum það. Þegar heim var komið var trénu bara hennt út í garð þangað til við myndum setja það upp. Það var svoldið stórt við vissum það alveg en þegar kom svo að því í gær að fara setja það upp var það heldur mikið stærra en við gerðum okkur grein fyrir. Lalli dröslaðist upp með tréið og ég tók á móti því uppi, ég sagði við Lalla eigum við að prófa að henda málbandi á tréið og sjá hvað það er nú stórt og vitir menn það var á milli 2.80 og 2.90cm á hæð. Já, það var heldur stórt. Trénu var hennt inn á bað og upp hófst þá mikil "smíðavinna" að saga tréið í rétta stærð það tókst for resten en þá voru lika farnir um 50cm af því. Tréið fór upp rétt um klukkan 1 eftir miðnætti og þá buið að liggja í vatnsbaði í smá stund og bar sig lika bara mjög fallega.
Skreytingarnar á tréið eru svo að eina sem er eftir og verður þeim hennt upp þegar tími leyfir.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
<< Heim